hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
18.8.2012

NM Unglinga, úrslit frá fyrri degi

Aníta Hinriksdóttir varð í Norðurlandameistari í 800m hlaupi þegar hún kom lang fyrst í mark á 2:03,66 mín eða um 7 sek á undan næstu stúlku. Íslandsmet hennar er 2:03.15 mín. Ísland átti síðan annan Norðurlandameistara, það var hún Stefanía Valdimarsdóttir sem sigraði í 400m grindahlaupi.

Sindri Lárusson átti góðan dag í dag en hann varð í 3. sæti og kastaði 17.86 m, frábær árangur hjá honum. Hann gerði aðeins eitt ógilt kast en það lengsta kom í fyrsta kasti.

Hilmar Örn Jónsson hefur lokið keppni í sleggjukasti og varð hann í 7. sæti með 62.55 m sem jafnframt er nýtt aldursflokkamet. Snorri Stefánsson hljóp 800m á 1.55.76 mín og varð 8.  Þetta var fín bæting hjá Snorra sem átti best 1;58 mín áður, og skýtur honum upp í annað sætið á listanum yfir ársbestu tíma.

Dóróthea Jóhannesdóttir varð 8. í 100m á 12.56 sek, sem er hennar besti tími í ár. Hún varð einnig 8. í þrístökki með 11.08 m sem er jöfnun á hennar ársbesta árangri.

Dóróthea og Arna Stefanía Guðmundsdóttir voru síðan í sveit Íslands í 4 x 100m boðhlaupi sem gerði sér lítið fyrir og kom í 3. sæti í mark á 48.03 sek.

Fínn ÍR dagur og til hamingju krakkar