hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
15.7.2012

MÍ seinni dagur. Fimm gull, 10 silfur og 6 bronsverðlaun og sigur í heildarstigakeppninni

Gullverðlaunahafar á seinni degi MÍ voru: Mark W. Johnson í stangarstökki, 5,10 m, Jóhanna Ingadóttir í þrístökki með 12,20 m og hin 15 ára Melkorka Embla Hjartardóttir í 800 m hlaupi á 2:29,89 mín. Þá unnu ÍR-ingar sigur í 4x400 m boðhlaupi karla og kvenna. Adam Þorgeirsson, Einar Daði Lárusson, Helgi Björnsson og Ívar Jasonarson skipuðu karlasveitina og Arna Stefanía Guðmundsdóttir, Kristín Birna Ólafsdóttir, Björg Gunnarsdóttir og Aníta Hinriksdóttir kvennasveitina. Silfurverðlaun voru tíu talsins: Einar Daði Lárusson í stangarstökki með 4,62 m, Heiðar Geirmundsson í kúluvarpi með 15,00, Þorbergur Ingi Jónsson í 5000 m hlaupi á 15:15,28 mín, Adam Þorgeirsson í 400 m grindahlaupi á 58,63 sek., Guðmundur Arnar Sigurðsson í 800 m á 1;57,66 mín, fyrsta sinn sem hann hleypur 800 m undir 2 mínútum, Stefán Árni Hafsteinsson í kringlukasti með 39,98 m, Dóróthea Jóhannesdóttir í þrístökki með 11,09 m, Arna Stefanía í 200 m á 25,60 sek. og Fríða Rún Þórðardóttir í 3000 m á 10:40,41 mín. ÍR hlaut silfurverðlaun í 4x400 m boðhlaupi karla: Arnar Orri Sverrisson, Snorri Stefánsson,  Arnar Pétursson og  Guðmundur Arnar. Til bronsverðlauna unnu: Snorri Stefánsson í 800m á 1:58,00 mín, Kristín Birna Ólafsdóttir í 400 m grindahlaupi á 64,12 sek., Ásthildur Jóhannesdóttir í 800 m á 2:32,75 mín, Arna Stefanía Guðmundsdóttir í hástökki með 1,63 m, Sigurlaug Helgadóttir í þrístökki með 10,83 m og Björg Gunnarsdóttir í 200 m á 26,15 sek.