hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
14.7.2012

MÍ fyrri dagur. Karlarnir með þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.

Einar Daði Lárusson vann til fernra verðlauna, þar af tveggja gullverðlauna, í hástökki þar sem hann bætti sinn árangur þegar hann stökk 2,05 m og í 110 m grindahlaupi þar sem hann sigraði með yfiriburðum á tímanum 14,64 m. Þá varð hann í þriðja sæti í langstökki með 7,29 og var í sveit ÍR sem vann til silfurverðlauna í 4x100 m boðhlaupi. Sveitina skipuðu auk hans Juan Ramon Borges, Ívar Jasonarson og Helgi Björnsson. Guðmundur Sverrisson varð Íslandsmeistari í spjótkasti eftir hörkukeppni við Örn Davíðsson FH. Sigurkastinu náði Guðmundur í sjötta og síðasta kasti og bætti hann  sinn árangur í 72,11 m. Arnar Pétursson vann gullverðlaun í 3000 m hindrunarhlaupi á tímanum 10:07,20 mín og Ármann Eydal Albertsson vann silfurverðlaun á 10:47,71 mín. Hilmar Örn Jónsson vann silfurverðlaun í sleggjukasti með 54,94 m, aðeins 1,23 m á eftir Íslandsmethafanum Bergi Inga Péturssyni. Ívar Jasonarson vann bronsverðlaun í 400 m hlaupi á 49,16 sek. Þá vann Sæmundur Ólafsson silfurverðlaun í 1500 m hlaupi á 4:21,96 mín.  ÍR-ingar hafa forystu í stigakeppninni í karlaflokki.