hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
13.8.2012

MÍ 15-22 ára - ÍR-ingar Íslandsmeistarar félagsliða 9. árið í röð

Keppni á Meistaramóti Íslands 15 til 22 ára er nú lokið og ljóst að lið ÍR hampar Íslandsmeistaratitli félagsliða 15 til 22 ára 9. árið í röð. Liðið hlaut 574,5 stig en Breiðablik sem varð í örðu sæti hlaut 305 stig. Sigur vannst í 5 aldursflokkum.

15 ára stúlkur hlutu 100,5 stig og unnu sinn flokk. FH varð í öðru sæti með 56 stig
16 - 17 ára stúlkur fengu 94 stig og fyrsta sætið. HSK/Umf. Selfoss varð í öðru sæti með 59 stig
18 - 19 ára stúlkur unnu með 76 stigum  en Breiðablik varð í öðru sæti með 38 stig.
20 - 22 ára stúlkur urðu í þriðja sæti með 12 stig en FH bar sigur úr bítum með 76 stig

15 ára piltar urðu í öðru sæti með 51 stig en Breiðablik sigraði í flokknum þeir hlutu 113 stig
16 - 17 ára piltar höfnuðu í öðru sæti með 55 stig á eftir Breiðablik sem fékk 86 stig
18 - 19 ára piltar sigruð með 64 stig en Breiðablik varð í öðru sæti með 57 stig
20 - 22 ára piltar höfðu mikla yfirburði í sínum flokki en þeir hlutu 122 stig en HSK/Umf. Selfoss varð í örðu sæti með 45 stig.

Alls unnu ÍR-ingar 44 Íslandsmeistaratitla um helga. Flesta titlana hlaut Ívar Kristinn Jasonarson sem vann fimm greinar. Glæsilegur árangur það.

 

Fjölmargir ÍR-ingar voru á verðlaunapalli í dag.

Í flokki 15 ára
Stúlkur:
Thelma Lind Kristjánsdóttir varð Íslandsmeistari í þrístökki þegar hún stökk 10,79m og í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 10,72m. Hún vann til silfurverðlauna í spjótkasti (400gr) þegar hún kastaði 33,72m og í 200m hlaupi þegar hún hljóp á 27,33s
Hanna Þráinsdóttir hlaut gullverðlaunin í hástökki þegar hún fór yfir 1,54m
Sandra Eiríksdóttir fékk bronsið í spjótkasti (400gr) með 26,31m langt kast, í þrístökki þegar hún stökk 9,85m og í kúluvarpi (3kg) þegar hún varpaði kúlunni 10,15m. Sandra varð svo önnur í hástökki þegar hún stökk yfir 1,51m
Melkorka Embla Hjartardóttir sigraði í 800m hlaupi á tímanum 2:38,14mín
Piltar:

Magnús Jochum Pálsson vað þriðji í 800m hlaupi á tímanum 3:43,74mín og einnig í 200m hlaupinu á 26,19s
Sævar Hlíðkvist Kristmarsson fékk silfurverðlaun fyrir 200m hlaupið sem hann hljóp á 25,08s
Dagbjartur Daði Jónsson varð í þriðja sæti í spjótkasti (600gr) með 45,01m langt kast 

Í flokki 16 til 17 ára
Stúlkur:
Aníta Hinrikdsdóttir varð Íslandsmeistari í 200m hlaupi á 25,90s og önnur í 100m grindahlaupi á tímanum 15,99s
Arna Stefanía Guðmundsdóttir hlaut silfurverðlaun í spjótkasti (500gr) með 38,09m langt kast
Rannveig Dóra Baldursdóttir vann til silfurverðlauna í hástökki með stökk upp á 1,48m
Laufey Svafa Rúnarsdóttir fékk bronsið í 800m hlaupi þegar hún hljóp á 2.34,23mín
Piltar:

Hilmar Örn Jónsson varpaði kúlunni 15,72m og sigraði í kúluvarpi (5kg). Hann varð svo þriðji í spjótkasti (700gr) með 41,10m langt kast
Jón Gunnar Björnsson vann silfurverðlaun í hástökki þegar hann fór yfir 1,70m

Í flokki 18 til 19 ára
Stúlkur:
Dóróthea Jóhannesdóttir varð Íslandsmeistari í þrístökki en hún stökk 10,86m
Björg Gunnarsdóttir varð önnur í 200m hlaupinu á 26,86s Hilda Margrét Ragnarsdóttir sigraði í kúluvarpi en hún varpaði kúlunni 9,51m
Jóhanna Björk Viktorsdóttir varð þriðja í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 7,45m og hún fékk líka bronsið í spjótkasti (600gr) með kast upp á 23,64s
Piltar:
Sindri Lárusson sigraði í kúluvarpi (4 kg) með 17,03m lögnu kasti. Hann varð annar í spjótkasti(800gr) með 45,82m langt kast
Kelvin Adames vann til bronsverðlauna í spjótkasti (800gr) þegar hann kastaði 45,82m
Snorri Stefánsson vann 800m hlaupið á tímanum 1:57,07mín

Í flokki 20 til 22 ára
Stúlkur:
Sigurlaug Helgadóttir varð Íslandsmeistari í þrístökki þegar hún stökk 10,56m
Boðhlaupssveit ÍR vann til gullverðlauna í 4x400 metra boðhlaupinu á tímanum 4:27,21mín
Piltar:
Einar Daði Lárusson varð Íslandsmeistari í spjótkasti (800gr) með 49,46m langt kast
Stefán Árni Hafsteinsson varð þriðji í 110m grindahlaupi en hann hljóp á 21,54s. Hann vann svo til silfurverðlauna í hástökki þegar hann fór yfir 1,50m 
Ármann Óskarsson vann til bronsverðlauna í spjótkasti (800gr) en hann kastaði 42,84m
Ívar Kristinn Jasonarson varð Íslandsmeistari í 200m hlaupi á tímanum 22,56s
Helgi Björnsson vann til silfurverðlauna í 110m grindahlaupi á tímanum 17,15s og í 200m hlaupi á 22,76s
Snorri Sigurðsson vann gullið í 800m hlaupi á tímanum 1:56,66mín
Guðmundur Arnar Sigurðsson fékk silfrið í 800m hlaupa en hann hljóp á 2.99,44mín
Boðhlaupssveit ÍR sigraði í 4x400 metra boðhlaupinu á tímanum 3:27,85mín

Óskum öllum þessum glæsilegu íþróttamönnum, þjálfurum þeirra og fjölskyldum til hamingju með frábæran árangur.