hreysti


valitor











































Lesa frétt
4.2.2012

MÍ 15 - 22 ára - frábær fyrri dagur - 15 Íslandsmeistaratitlar til ÍR

DSC_5286

Sigurlið ÍR frá því í fyrra.
Ljósm. Margrét

Meistaramót Íslands 15 - 22 ára fer fram í Laugardalshöll um helgina. ÍR- ingar eiga titil að verja og það eru 67 vaskir ÍR-ingar sem mættu til leiks í morgun staðráðnir í að verja þann titil.
Fjölmargir ÍR-ingar voru á verðlaunapalli á fyrra degi mótsins og 15 ÍR- ingar unnu til Íslandsmeistaratitils.
Eftir fyrri daginn leiða ÍR- ingar stigakeppni félaganna í 5 aldursflokkum af 8 og í heildarstigakeppninni leiða ÍR - ingar með 229,8 stig í fyrsta sæti en Breiðablik er í öðru sæti með 96,5 stig.
ÍR-ingar sjá um framkvæmd mótsins og í dag voru 48 sjálfboðaliðar sem framkvæmdu mótið sem gekk ákaflega vel enda valinn maður í hverju rúmi.
Með því að smella á meira má sjá árangur þeirra ÍR-inga sem stigu á verðlaunapallinn í dag.
Þeir ÍR ingar sem unnu til verðlauna í dag voru:

Í flokki 15 ára stúlkna
Hanna Þráinsdóttir vann til silfurverðlauna í hástökki þegar hún fór yfir 1,54 m.
Thelma Lind Kristjánsdóttir sigraði í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 10,74 m. Hún varð í öðru sæti í 60 m hlaupi á 8,15 sekúndum og í langstökki með stökk upp á 5,02 m.
Melkorka Embla Hjartardóttir vann til silfurverðlauna í 800 m hlaupi á tímanum 2;26,37 mín.
Málfríður Anna Eiríksdóttir varð í öðru sæti í 800 m hlaupinu á tímanum 2:33,26 mín.

Í flokki 15 ára pilta
Magnús Jochum Pálsson vann til bronsverðlauna í 60 m hlaupi á 7,94 sekúndum.
Tómas Kolbeinn Georgsson vann til silfurverðlauna í 800 m hlaupi á 2:19,91 mín.

Í flokki 16-17 ára stúlkna
Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigraði í 60 m hlaupi á tímanum 8,18 sekúndum. Arna Stefanía sigraði einnig í langstökki þegar hún stökk 5,32 m og varð í öðru sæti í hástökki þegar hún fór yfir 1,60 m. 
ÍR-stúlkurnar unnu þrefallt í 800 m hlaupinu. Fyrst í mark kom Aníta Hinrkisdóttir á tímanum 2:08,65 mín. Í öðru sæti varð Lauey Svafa Rúnarsdóttir á 2:33,07 mín og í þriðja sæti varð Ásthildur Margrét Jóhannsdóttir á 2:35,50 mín. 
Kristín Liv Svabo Jónsdóttir sigraði í hástökki þegar hún fór yfir 1,63 m.

Í flokki 16-17 ára pilta
Hilmar Örn Jónsson sigraði í kúluvarpi  þegar hann varpaði kúlunni 16,21 m.
Gunnar Guðmundsson sigraði í langstökki þegar hann stökk 5,63 m. Hann vann til bronsverðlauna í 60 m hlaupi á tímandum 7,45 sekúndum.
Jón Gunnar Björnsson varð í þriðja sæti í langstökki en hann stökk 5,53 m.
Sæmundur Ólafsson sigraði í 800 m hlaupi á tímanum 2:05,81 mín.

Í flokki 18-19 ára stúlkna
Dóróthea Jóhannesdóttir vann til bronsverðlauna í langstökki með stökk upp á 5,39 m og hún varð í öðru sæti í 60 m hlaupinu á 8,02 sekúndum og hástökki þegar hún fór yfir 1,57 m.
Hilda Margrét Ragnarsdóttir varð þriðja í hástökkinu en hún stökk yfir 1,50 m. Hún varð svo í þriðja sæti í 800 m hlaupinu á 3:01,44 mín og í öðru sæti í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 9,63 m.

Í flokki 18-19 ára pilta
Sindri Lárusson sigraði í kúluvarpi þegar hann varpaði kúlunni 15,54 m
Stefán Velmer vann til bronsverðlauna í kúluvarpinu. Hann varpaði kúlunni 14,15 m.
Snorri Stefánsson sigraði í 800 m hlaupi á 1:59,24 mín.

Í flokki 20-22 ára stúlkna
Sigurlaug Helgadóttir vann til silfurverðlauna í langstökki  þegar hún stökk 4,34 m. Sigurlaug vann til bronsverðlauna í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 7,18 m .
Helga Rún Hlöðversdóttir varð önnur í kúluvarpi en hún varpaði kúlunni 7,43 m.

Í flokki 20-22 ára pilta
Ívar Kristinn Jasonarson sigraði í 60 m hlaupi á tímanum 7,09 sekúndum. Hann sigraði einnig í 400 m hlaupinu á 48,94 sekúndum.
Snorri Sigurðsson sigraði í 800 m hlaupi á tímanum 1:58,83 mín. Hann varð í þriðja sæti í 400 m hlaupi á tímanum 50,04 sekúndum.
Guðmundur Arnar Sigurðsson varð annar á persónulegu meti í 800 m hlaupinu á 2:00,24 mín.
Juan Ramón Borges varð í öðru sæti í 60 m hlaupinu á 7,20 sekúndum. Hann stökk 6,21 m í langstökki og vann til bronsverðlauna.
Einar Daði Lárusson sigraði í kúluvarpi. Hann varpaði kúlunni 13,23 m.

Glæsilegur árangur hjá okkar unga íþróttafólki og þjálfurum þeirra. Það verður gaman að fylgjasat með þeim á morgun.