hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
30.6.2012

ÍR-ingar með góðan árangur á fyrri degi MÍ 11 til 14 ára.

ÍR - ingar náðu ágætum árangri á fyrri degi MÍ 11 - 14 ára. Í flokki 13 ára leiða ÍR-ingar í stigakeppninni en eru í öðru sæti á eftir FH í heildarstigum. Í flokki 11 ára sigraði Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir í tveimur greinum, 60 m hlaupi á 9,00 sek.  (8,93 í undanrásum) og 800 m hlaupi á 2:50,99 mín og þá náði hún öðru sæti í hástökki með 1,21 m. Bjarki Sigurjónsson sigraði í 800 m eftir hörkukeppni með 2:42,24 mín.  Í flokki 12 ára varð Hlín Eiríksdóttir í öðru sæti í 800 m hlaupi á 2:37,62 mín og Mikael Máni Atlason þriðji í spjótkasti með 26,64 m. Í flokki 13 ára sigraði Margrét Hlín Harðadóttir í 800 m hlaupi eftir frábæran endasprett á 2:36,58 mín og í hástökki unnu ÍR-ingar tvöfaldan sigur, Hildigunnur Þórarinsdóttir sigraði með 1,43 m og Vilborg María Loftsdóttir varð önnur með 1,36 m. Í flokki 14 ára varð Ásta Margrét Einarsdóttir önnur í 800 m á 2:34,13 mín. Fjölmargir náðu sínum besta árangri og stóðu sig vel í B-úrslitahlaupum. Öll úrslit er að finna í mótaforriti FRÍ.