hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
24.8.2012

ÍR-ingar leiða stigakeppni karla, kvenna og heildar, í Bikarkeppni FRÍ

ÍR-ingar áttu góðan dag á Akureyri í dag á 47. Bikarkeppni FRÍ. ÍR leiðir heildarstigakeppnina með 95 stig en FH er í 2. sæti með 82 stig. Karlalið ÍR er með 52 stig og konurnar 43 stig og 9 og 4 stig meira en næst lið. Keppnin á þó eftir að halda áfram að vera spennandi þrátt fyrir heldur kalt veður og mikinn vind.

Þeir ÍR-ingar sem urðu í 1. sæti í dag voru Jóhanna Ingadóttir í þrístökki sem stökk 70 cm lengra en næsti keppandi. Einar Daði sigraði í stangarstökki með 4,50m og varð 2. í langstökki eftir mikið cm stríð þar sem aðeins 2 cm skildu 1. og 2. sætið. Fríða Rún Þórðardóttir sigraði í 1500m og Guðmundur Sverrisson sem sigraði í spjótkasatinu með 70,32m langt kast. Boðhlaupssveitir ÍR klikktu svo út með sigri í bæði karla- og kvennaflokki í 4x100m boðhlaupinu.

Sindri Lárusson stóð sig vel í kúlunni og varð í 2. sæti á eftir Ólympíufaranum Óðni Birni Þorsteinssyni.

Adam Þór Þorgrímsson kom einnig annar í mark en það var í 400m grindahlaupi. Helgi Björnsson og Hrafnihild Eir Hermóðsdóttir urðu bæði í 2. sæti í 100m flottur árangur hjá þeim. Sama má segja um Tómas Zoega sem hljóp sitt 2. 3000m hindrunahlaup og varð 2. á eftir mjög reyndum keppnismanni, Sigurbirni Árna Arngrímssyni. Snorri Sigurðsson sýndi mjög góða takta í 1500m hlaupinu en þar var mjög taktíkst og spennandi hlaup þar sem úrslitin réðust rétt á loka metrunum.

Aníta Hinriksdóttir varð 3. í 400m grindahlaupi og 2. í 400m.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir varð 3. í spjótkasti og Ívar Kristinn Jasonarson varð 3. í 400m. Sandra Pétursdóttir kastaði kúlunni og varð í 3. sæti.