hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
29.6.2012

Í morg horn að líta um helgina

Eins og flestar helgar sumarsins eru margir að undirbúa sig undir keppni þessa helgina. Meistaramót Íslands 11 til 14 ára verður í Laugardalnum og ÍR-ingar senda fjölmennt lið til keppni. Það verða 50 vaskir krakkar sem freista þess að endurheimta titilinn Íslandsmeistarar félagsliða sem tapaðist á Vík í Mýrdal í fyrra sumar. Ekkert félag er með eins marga skráða til leiks.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir mun keppa á fjölþrautamóti í Kópavoginum og reyna að ná lágmarkinu á HM unglinga 19 ára og yngri.

Hilmar Örn Jónsson okkar bráðefnilegi kastari keppir á móti í Helsinsborg í Svíþjóð.

Það verður gaman að fylgjast með þeim um helgina. Við vonum að þeim gangi allt í haginn. Áfram ÍR.