hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
24.6.2012

Gogga lokið með glæsibrag

Goggi 2012ÍR-krakkarnir stóðu sig heldur betur vel á Gogga galvaska. Þau unnu til verðlauna í 39 greinum og urðu stigahæst félaganna á mótinu. Piltar 11 ára, stúlkur 13 og 14 ára sigruðu í stigakeppninni í sínum aldursflokkum og stúlkur 11 og 12 ára og piltar 13 ára urðu í öðru sæti í stigakeppninni. Flestir bættu sinn besta árangur enda lék veðrið við keppendur alla mótsdagana. Flottur árangur hjá krökkunum sem voru vel studd af þjálfurum sínum og foreldrum sem fjölmenntu á pallana á Varmárvelli. Hér er Goggi sjálfur með hluta af okkar sigursæla liði.