hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
22.6.2012

Góður árangur ÍR-inga í Miðnæturhlaupinu

Miðnæturhlaup Suzuki fór fram í kvöld. Í 5 km hlaupinu áttu ÍR-ingar þrjá fyrstu í mark, Sæmundur Ólafsson sigraði á 16:07 mín, Ármann Eydal Albertsson annar á 16:16 og Þórólfur Ingi Jónsson þriðji á 16:51. Sæmundur og Ármann með sinn langbesta árangur. Í 10 km hlaupinu náði Tómas Zoëga Geirsson öðru sætinu í á 33:50 mín og Fríða Rún Þórðardóttir öðru sætinu í kvennaflokki á 40:38 mín. Þá áttum við tvo fyrstu hlauparana í mark í hálfmaraþonhlaupinu. Þorbergur Ingi Jónsson sigraði á tímanum 1:11:40 klst. og í öðru sæti vaðr Arnar Pétursson á  1:14:42 klst. Þetta eru stórbætingar hjá þeim báðum.