hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
16.7.2012

Framfarahlaup Melabúðarinnar og Viðurkenningar til Anítu

Á morgun, þriðjudaginn 17. júlí kl. 18 fer fyrsta Framfarahlaup Melabúðarinnar fram á túninu við Vesturbæjarlaugina. Keppt er í flokkum stráka og stelpna í aldursflokkunum 8 ára og yngri (400m), 9-10 ára (800m) og 11-12 ára (1200m). Skráning er á www.hlaup.com og á staðnum frá kl. 16:30. Þátttaka er ókeypis og verður börnum boðið frítt í sund í boði Melabúðarinnar og Vesturbæjarlaugar.

Áður en keppni hefst verður Anítu Hinriksdóttur hlaupakonu úr ÍR veit viðurkenning Framfara vegna Íslandsmets hennar í 800m og frábærrar frammistöðu á HM 19 ára og yngri á dögunum. Ragnheiður Ólafsdóttir fyrrverandi handhafi Íslandsmetsins mun veita Anítu viðurkenninguna.

Á baksíðu Morgunblaðsins og á www.mbl.is er frétt um viðburðinn en allar upplýsingar má finna á Facebook síðu Framafara