hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
9.6.2012

Fleiri frjálsíþróttamenn í góðum gír

Fimm íslenskir frjálsíþróttamenn tóku þátt í mótum í Hollandi þar sem um var að ræða alþjóðlegt mót og í liðakeppni milli nokkurra félagslíða í Danmörku í dag. Í Hollandi hóf Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir ÍR daginn á að hlaupa 100m á 12,10sek sem er 1/100 úr sekúndur frá hennar besta (12,09sek ). Hún gerði enn betur í 200m hlaupi klukkustund síðar þegar hún hljóp á 24,55 sek. Þetta er persónulegt met og tímarnir í báðum hlaupum bestu tímar íslenskrar konu á þessu ári. Þorsteinn Ingvarsson HSÞ stökk 7,27m í langstökki og Kristinn Torfason 7,42m á sama móti. Jóhanna Ingadóttir gerði því miður öll sín stökk í þrístökki ógild. Þau keppa næst í Gautaborg 12. Júní.

Í Danmörku keppti Sandra Pétursdóttir ÍR í liðakeppni danska frjálsíþróttasambandsins og kastaði hún sleggjunni 51.62 m með 2 köst yfir 51m en hún á best 54,19m, hún keppti svo einnig í lóðkasti og kastaði þar 16,04 m, á þar best 16,96 m og í kringlukasti fór kringlan 32 m en hún á best rúma 36 m.