hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
6.5.2012

Einar Daði kláraði þrautina með góðu 1500 m hlaupi, fór upp í 3. sæti og náði sínum besta árangri í þraut

Einar Daði á palli 2012Einar Daði lauk þrautinni með góðu 1500 m hlaupi, hljóp á 4:36, 34 mín og sigraði í þeirri grein. Hann fór með því upp í 3. sæti og lauk þrautinni með 7590 stigum sem er þriggja stiga bæting frá þrautinni í Kladno 2011. Að sögn Þráinns Hafsteinssonar þjálfara Einars Daða vakti árangur hans mikla athygli en hann var með 13. besta árangur keppenda en endar í þriðja sæti. Aðstæður voru engan veginn nógu góðar, t.d rigndi mikið og hættu margir keppni vegna aðstæðna og aðeins tveir bættu sinn árangur,  Einar Daði var annar þeirra.  Næsta verkefni Einars Daða er tugþraut í Kladno 9. og 10. júní. Þessi árangur lofar góðu um að Einar Daði geti gert harða atlögu að lágmarki í þeirri þraut. Lágmarkið fyrir EM er 7800 stig og fyrir OL 7950 stig.