hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
28.6.2012

Einar Daði á EM, seinni keppnisdagur

Einar Daði hóf nú fyrir stuttu seinni keppnisdaginn. Hann hljóp 110m grindahlaupið á 14,72 sek sem er hans annar besti tími og gefur honum 884 stig. Hann varð 5. í sínum riðli og með 13. besta tíma allra keppenda. Einar er nú í 9. sæti með 4981 stig af þeim 21 keppenda sem enn í þrautinni. Kringlukast er næsta grein og þar hefur Einar Daði kastað 35,95 m í fyrstu umferð en hann á 38.78 m frá því í Tékklandi.