hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
17.8.2012

Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri

Bikarkeppni FRI 15 ara og yngri 031Á sunnudaginn fer fram á Laugardalsvelli Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri. Að þessu sinni sendir ÍR tvö lið til keppni.

ÍR-ingar eiga titil að verja því lið ÍR hefur sigrað þessa keppni sl. 3 ár. Það verður örugglega hörð keppni um bikarmeistaratitilinn að þessu sinni. Við óskum krökkunum góðs gengis á sunnudaginn.

Það kemur að þessu sinni í hlut okkar ÍR-inga að halda mótið og til þess þarf um 30 manns. Foreldrar keppenda, eldri iðkendur og velunnarar deildarinnar ætla að sjá um framkvæmdina með dyggum stuðningi Jóns Þ. Ólafssonar sem verður yfirdómari að þessu sinni.

Á myndinni er sigurliðið frá í fyrra.