Lesa frétt
19.7.2012
Bætingar í Daegu í Suður-Kóreu
Átta ungmenni á aldrinum 14-15 ára tóku dagana 12.-17. júlí þátt í International Children´s Games eða Alþjóðaleikum ungmenna sem fram fór í Daegu í Suður-Kóreu. Að þessu sinni bauð Reykjavíkurborg 4 sundkrökkum og 4 frjálsíþróttakrökkum á leikana. Frjálsíþróttakrakkarnir eru Hanna Þráinsdóttir, Sævar Hlíðkvist Kristmarsson og Thelma Lind Kristjánsdóttir öll úr ÍR ásamt Viktori Orra Péturssyni úr Ármanni. Þjálfari hópsins er Hörður Grétar Gunnarsson þjálfari hjá ÍR.
Thelma Lind komst í úrslit í langstökki og lenti í 3. sæti með stökki upp á 5,40 m sem er bæting hjá henni. Thelma Lind var í öðru sæti fram að næst síðasta stökki keppninnar en þá stökk stúlka frá Skotlandi 5,42 m og komst upp í annað sætið. Thelma Lind keppti einnig í 100m hlaupi og komst í B-úrslit þar sem hún varð í 3. sæti á tímanum 13,22 sek. Thelma hljóp best 13,19 sek. í undanriðlum.
Hanna Þráinsdóttir komst í úrslit í hástökki og lenti í 5.-6. sæti með stökki upp á 1,58 m sem er bæting hjá henni utanhúss. Hanna átti góðar tilraunir við 1,61 m en felldi mjög naumlega. Sú hæð hefði tryggt henni 3. sætið og bronsverðlaun. Þó má geta þess að stúlkurnar í 3.-6. sæti stukku allar sömu hæð eða 1,58 m.
Sævar Hlíðkvist Kristmarsson komst í úrslit í langstökki með stökki upp á 5,80 m sem er bæting hjá honum. Vegna magakveisu varð Sævar að sleppa úrslitunum. Sævar keppti einnig í 100m hlaupi og komst í B-úrslit þar sem hann varð í 5. sæti á tímanum 11,98 sek. sem er rétt við hans besta tíma sem er 11,97 sek.
Viktor Orri Pétursson komst í B-úrslit í 1500m hlaupi þar sem hann varð í 2. sæti á tímanum 4:45,86 mín. sem er aðeins frá hans besta tíma.
Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum ungu og efnilegu krökkum sem voru landi og þjóð til fyrirmyndar meðan á leikunum stóð og verður gaman að fylgjast með þeim á næstu árum.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.