hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
1.7.2012

Arna Stefanía náði ekki að fylgja eftir góðum fyrri degi

Örnu Stefaníu tókst ekki vel upp í langstökkinu sem er fyrsta grein síðari dags í sjöþraut. Fyrstu tvö stökkin voru ógild og í þriðja stökki hljóp Arna út í gryfjuna og þá var ljóst að möguleikarnir á að ná lágmarki á HM 19 ára og yngri voru úr sögunni. Arna Stefanía er aðeins 17 ára og á því alla framtíð fyrir sér. HM 19 ára og yngri er haldið annað hvert ár og Arna Stefanía hefur því keppnisrétt að tveimur árum liðnum þegar keppnin fer fram í Bandaríkjunum. Er ekki að efa að reynslan sem hún hefur fengið í ár við reyna við lágmarkið á eftir að skila sér.