hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
30.6.2012

Arna Stefanía með góðan fyrri dag í Kópavogi

Í Kópavogi fer fram fjölþrautamót um helgina með aukagreinum þar sem nokkrir keppendur eru að reyna að ná lágmörkum á HM 19 ára og yngri. Arna Stefaní tekur þátt í sjöþraut og hefur hlotið 2919 stig eftir fyrri dag keppninnar sem er mjög svipað og í Noregi á dögunum. Árangurinn í einstökum greinum: 100 m grindahlaup 15,37 sek., hástökk 1,66 m, kúluvarp 9,70 m og 200 m hlaup 25,85 sek. Með góðum seinni degi á hún alla möguleika á að ná lágmarkinu á HM. Keppni hefst kl. 14:30 á Kópavogsvelli.