hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
14.6.2012

Arna Stefanía keppir á NM í fjölþraut um helgina

NMRanders20100612-F17-2-Gudmundsdottirhöjd7Arna Stefanía Guðmundsdóttir ÍR keppir um helgina í sjöþraut á Norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum sem fram fer í Sandnes í Noregi.  Arna Stefanía hefur æft mjög vel undanfarnar vikur og undirbúið sig vel fyrir keppni í flokki 18-19 ára í sjöþrautinni.  Ástæðan fyrir því að Arna Stefanía sem er aðeins 17 ára keppir í flokki 18-19 ára er að hún freistar þess að ná lágamarki til keppni á HM unglinga 19 ára og yngri í sjöþrautinni sem fer fram í Barcelona í júlí.  Arna Stefanía vann bronsverðlaun í flokki 16-17 ára í fyrra á NM unglinga og stefnir nú að að því að klára sína fyrstu keppni í sjöþraut með kvennaáhöldum 4kg kúlu, 600gr spjóti og 84sm háum grindum.  Þráinn Hafsteinsson þjálfari Örnu verður henni til aðstoðar.  Keppendur Íslands á NM unglinga verða auk Örnu Stefaníu, Helga Margrét Þorsteinsdóttir og María Rún Gunnlaugsdóttir úr Ármanni,Sveinbjörg Zophaníasdóttir FH, Ásgerður Jana Ágústsdóttir UFA, Ingi Rúnar Kristinsson Breiðablikog Sindri Hrafn Guðmundsson Breiðablik. Við óskum þeim öllum góðs gengis á mótinu.