hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
12.7.2012

Aníta Hinriksdóttir 4. á HM 19 ára og yngri

Aníta Hinriksdóttir náði nú rétt í þessu þeim stórkostlega árangir að verða 4. í 800m hlaupi á Heimsmeistaramóti 19 ára og yngri, aðeins 16 ára gömul. Aníta leiddi hlaupið fyrstu 400m og kom 4 í

mark á 2:03.23 mínútum en tíminn gefur rétt um 1100 IAAF árangursstig. Hlaupið sigraði bandarísk stúlka á 2:00,91 mín og önnur var breska stúlkan sem átt hefur besta tímann gegnum riðlakeppnina en hún hljóp á 2:00,96 mín, báðar voru að bæta sig. Aníta var aðeins 15/100 frá 3. sætinu.

Óskum Anítu og Gunnari Páli þjálfara hennar svo og Herði Gunnarssyni þjálfara hennar og fjölskyldu innilega til hamingju.