hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
20.6.2012

Aníta, Hilmar Örn og Sindri keppa í Þýskalandi um helgina.

DSC_2535Aníta Hinriksdóttir, Hilmar Örn Jónsson og Sindri Lárusson munu keppa á BAUHAUS Junioren-Gala í Mannheim um helgina. Auk þeirra keppa frá Íslandi Sindri Hrafn Guðmundsson Breiðablik, Stefanía Valdimarsdóttir Breiðablik og Kolbeinn Hörður Gunnarsson UFA. Fararstjórar eru Pétur Guðmundsson kastþjálfari og Þórey Edda Elísdóttir verkefnastjóri FRÍ.

Þau ætla að reyna við lágmörk fyrir HM 19 ára og yngri sem fram fer í Barcelona um miðjan júlí. Þess má þó geta að Aníta ein keppenda hefur nú þegar náð lágmarki í 800m hlaupi, frábær árangur þar sem hún er aðein 16 ára. Vonandi bætast fleiri í hópinn eftir þetta mót. En frestur til að ná lágmörkum rennur út 1. júlí. Aníta keppir í 1500 og 800m hlaupi um helgina, Hilmar Örn í sleggjukasti (6 kg) og Sindri í kúluvarpi (6 kg).

Við óskum þeim öllum góðs gengis á mótinu.

Heimasíða mótsins er: http://2012.juniorengala.de/pages/de/startseite.php