hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
11.7.2012

Aníta bætti enn á ný Íslandsmetið í 800m hlaupi kvenna og er komin í úrslit á HM

Aníta Hinriksdóttir bætt enn á ný Íslandsmetið í 800m hlaupi kvenna á HM 19 ára og yngri í Barcelona. Aníta kom í mark á 2:03,15 mín og bætti tímann frá því í gær um 1,59 sek hún varð önnur í sínum riðli. Aftur var það Jessica Judd frá Bretlandi var aftur með besta tímann 2:02,30 mín. Úrslitahlaupið fer fram annað kvöld kl. 19:15 en af þeim 44 stúlkum sem hófu keppni í gær komast 8 áfram í úrslit og er Aníta með  7  best tíma þeirra. Í gær bættu 6 stúlkur af 44 sinn besta tíma og ein sinn ársbesta tíma. Í morgun bættu 10 stúlkur sinn besta tíma sem segir mikið um gæði hlaupsins. Stórkostlegir tímar hjá þessum ungu stúlkum.

Sindri Lárusson keppti  í kúluvarpi hann kastaði lengst 16.82 m en það dugði honum ekki til að komast í úrslit.