hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
2.6.2012

3 gull og 2 silfur á fyrri degi MÍ á Selfossi

 

2.júní 212 032

Meistaramót Íslands í fjölþrautum, 5 og 10 km og lengri boðhlaupum fer fram á Selfossi um helgina. Fríða Rún Þórðardóttir vann gull í 5000 m hlaup kvenna (tími um 18:57) og Arnar Pétursson vann silfurverðlaun í 10000 m hlaupi karla eftir mikla keppni á 33:21. Þetta er hans fyrsta brautarhlaup í 10000 m hlaupi en stórbæting frá besta tíma í 10 km götuhlaupi. Gullverðlaun unnust í 4x800 m boðhlaupi karla og 3x800 m boðhlaupi kvenna en þar var ÍR með tvær sveitir og var B-sveitin í öðru sæti. Guðmundur Arnar Sigurðsson, Ólafur Konráð Albertsson, Arnar Orri Sverrisson og Snorri Sigurðsson skipuðu karlaveitina. Málfríður Anna Eiríksdóttir, Ásthildur Margrét Jóhannsdóttir og Björg Gunnarsdóttir skipuðu A sveit kvenna og B - svetina skipuðu Kristín Margrét Kristjánsdóttir, Fríða Rún Þórðardóttir og Margrét Hlín Harðardóttir. Staðfestir tímar voru ekki komnir á netið þegar þetta er skrifað.

2.júní 212 026