26.8.2012
Tímamótasigur ÍR í Bikarkeppni FRÍ 1. deild - Pistill frá Þráni Hafsteinssyni, yfirþjálfara
Sigur ÍR-inga í karla- og kvennaflokki og samanlagt í Bikarkeppni FRÍ í 1.deild sem fram fór á Akureyri á föstudag og laugardag er tímamótasigur. ÍR-ingar sigruðu síðast þrefalt í keppninni árið 1985 og því er nú 27 ára bið eftir svo afgerandi sigri á enda. Sigurinn í kvennakeppnninni og í heildarstigakeppninni var sá fjórði í röð frá 2009 og þar með hafa ÍR-ingar sigrað í 21 skipti í heildarstigakeppnninni eða oftast allra liða, en keppnin var nú haldin í 47. skipti.
Sigur uppbyggilegs íþróttastarfs
Árangur ÍR-inga í Bikarkeppni FRÍ um helgina endurspeglar fjölþætt og mikið starf sem fjöldi manns vinnur á hverjum einasta degi; mánuðum, árum og jafnvel áratugum saman af einstökum áhuga og metnaði. Keppnisliðið með varamönnum taldi 36 eintaklinga, 8 þjálfarar fylgdu liðinu til keppni ásamt formanni deildarinnar Margréti Héðinsdóttur. Fjöldi foreldra og stuðningsmanna hvatti liðið óspart báða keppnisdagana og sex einstaklingar voru allan mótstímann að vinna við dómgæslu fyrir hönd ÍR. Meðal áhorfenda og stuðningsmanna ÍR-liðsins var sjálfur Vilhjálmur Einarsson silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólympíuleikunum 1956 og ÍR-ingur. Þegar forysta deildar eða félags er samstíga í að byggja starfið á þeim grunni sem lagður hefur verið með áratuga starfi en jafnframt að hugsa hátt og langt fram í tímann næst árangur. Þegar sama forysta er samtaka um að byggja upp og búa íþróttafólkinu sem elst upp í félaginu eins góða aðstöðu, þjálfun, félagsskap og verkefni eins og best verður á kosið næst árangur. Það þarf þolinmæði, þrautseigju og trú á að stefnan sé rétt til að sveigja ekki af leið þegar á móti blæs. Árangurinn sem náðist um helgina er afrakstur uppbyggilegrar íþróttastefnu sem unnið hefur verið eftir í fjölda ára hjá ÍR, árangur sem langt í frá er sjálfsagður eða heppni.
Íþróttafólkið vel undirbúið og staðráðið í að sigra
Keppnislið ÍR kom frábærlega stemmt til keppni og viljinn til að leggja sig fram skein úr hverju einasta andliti. Yfirbragð liðsins lýsti af öryggi, hógværð og baráttuanda. Þrátt fyrir að landsliðsfólk á borð við Kristínu Birnu Ólafsdóttur, Mark Johnson, Huldu Þorsteinsdótur, Björgu Gunnarsdóttur og Ólaf Konráð Albertsson væri fjarri vegna persónulegra áfalla eða meiðsla var engan bilbug að finna á liðinu. Varamenn komu inn í þeirra stað og stóðu sig með mikilli prýði og allir voru tilbúnir til að taka á sig aukagreinar og aukna ábyrgð ef á þurfti að halda. Nokkrir kepptu þrátt fyrir veikindi og enn aðrir kepptu frábærlega þrátt fyrir þreytu eftir langt og erfitt keppnistímabil.
Einstakt þjálfaragengi
Átta manna þjálfarahópur fylgdi keppnisliði ÍR í gegnum keppnina við erfiðar aðstæður. Alveg sama hvar litið var á völlinn allstaðar þar sem keppni fór fram voru 1-2 bláklæddir þjálfarar ÍR að styðja og leggja keppendum okkar lið. Vinnusemi og metnaður þessa hóps er einstakur og ekkert annað lið á Íslandi sem getur státað af slíkum hópi úrvalsþjálfara sem vinna svo uppbyggilega með íþróttafólkinu sem raun ber vitni. Alberto Borges, Gunnar Páll Jóakimsson, Pétur Guðmundsson, Einar Vilhjálmsson, Þórdís Gísladóttir, Þorvaldur Þórsson og Hulda Þorsteinsdóttir kærar þakkir fyrir frábæra vinnu.
Unglingarnir geta ekki beðið eftir að komast í liðið
Sjö unglingar á aldrinum 15-16 ára voru í keppenda- og varamannahópnum. Fjögur þeirra kepptu sem aðalmenn og stóðu sig mjög vel og þau sem ekki kepptu sóttu það mjög stíft að fá að vera varamenn og voru öll tilbúin ef kallið kæmi.
Traustur og öflugur hópur foreldra og stuðningsmanna
Þrjátíu manna hópur foreldra og stuðningsmanna fylgdi liðinu til Akureyrar og lét vel í sér heyra úr áhorfendapöllunum. Þessi hópur er líka ómetanlegur í stuðningi sínum við þjálfarana og forystu deildarinnar í þeirra störfum.
Dómgæsla í hjáverkum
Allur hópurinn hjálpaðist svo að við að manna sex dómarastöður í kastgreinum á meðan mótið stóð yfir og fórst það vel úr hendi. Kærar þakkir allir sem komu að dómgæslunni.
Ný verkefni og ný markmið
Endurheimt Bikarsins árið 2009 eftir 20 ára bið var mikið afrek og stór stund í sögu ÍR en oft er sagt að erfiðara sé að halda sér á toppnum en að komast þangað. Frá því að sigur vannst 2009 í heildarstigakeppninni hefur okkar markmið verið að vinna heildarstigakeppnina og að vinna bæði kvenna og karlakeppnina. Sigur hafði unnist í kvennakeppni og heildarstigakeppninni 2009, 2010 og 2011 og nú 2012 tókst með glæsibrag að vinna þrefalt og því kominn tími til að setja ný markmið í Bikarkeppni FRÍ og reyndar öllu starfi deildarinnar. Við stöndum við lok tímabilsins 2008-2012 og framundan er ný Olympíada 2012-2016. Markmið og leiðir fyrir barna- og unglingastarf, meistaraflokk, afreksstarf, almenningsíþróttir, sjálfboðaliðastarfið og mótahaldið þarf að setja áður en við leggjum upp í nýtt fjögurra ára tímabil sem kallast í íþróttasögunni Olympíada.
Umsögn um keppendur ÍR í karlakeppninni
Helgi Björnsson náði þrátt fyrir veikindi öðru sæti í 100m hlaupinu, hljóp þriðja sprett í 4x100m og 200m sprettinn í metsveitinni í 1000m boðhlaupinu. Annað árið í röð sem Helgi gerir mun betur en hægt var að reikna með.
Ívar Kristinn Jasonarson varð einnig óvænt í öðru sæti í 200m hlaupinu og aðeins 7/100 frá sigri í 400m hlaupinu ásamt því að hlaupa annan sprett í 4x100m og þriðja sprett í metsveitinni í 1000m boðhlaupi. Ívar er afar traustur og stabíll liðsmaður.
Snorri Stefánsson nýliði hljóp 800m hlaupið og varð þriðji eftir taktísk hlaup og tapaði fyrir mönnum sem báðir eiga mun betri tíma. Snorri er maður framtíðarinnar.
Snorri Sigurðsson tók að sér að hlaupa 1500m hlaupið þegar ljóst var að Ólafur Konráð gæti ekki keppt og skilaði 2. Sæti. Ekki í fyrsta skipti sem Snorri tekur liðið fram yfir sjálfan sig í Bikar.
Tómas Zoega nýliði varð annar í 3000m hindrunarhlaupi eftir einvígi við Sigurbjörn Árna. Tómas barðist vel og má mjög vel við una.
Þorbergur Ingi Jónsson hljóp 5000m hlaupið eins og sá sem valdið hafði. Sprengdi keppinauta sína snemma í hlaupinu með miklum hraða og kom nær hring á undan Sigurbirni Árna í mark. Þorbergur er greinilega í hörku formi og gaman að sjá svo afgerandi sigur hjá honum.
Juan Ramon Borges hljóp fyrsta sprett í 4x100m og í metsveitinni í 1000m boðhlaupinu og skilaði sínu með glæsibrag. Ramon er mjög öruggur og öflugur boðhlaupari ásamt því að vera tilbúinn sem varamaður í margar greinar.
Adam Þorgeirsson hljóp 400m grindahlaupið af miklu öryggi og koma óvænt annar í mark í erfiðum aðstæðum eftir mjög spennandi hlaup.
Heimir Þórisson náði sínum langbesta árangri í sumar í þrístökkskeppninni og sannaði enn einu sinni að hann er mikill stemmningsmaður þegar mikið liggur við. Heimir náði þriðja sæti.
Hilmar Örn Jónsson sem er aðeins sextán ára gamall var öryggið uppmálað og náði öðru sæti á eftir Íslandsmethafanum í sleggjukasti Bergi Inga. Það verður spennandi að fylgjast með Hilmari í framtíðinni. Það styttist í fyrsta sætið.
Stefán Árni Hafsteinsson sem keppt hefur fyrir ÍR í stangarstökki í Bikarkeppni FRÍ söðlaði um í vor og hóf að einbeita sér að kringlukasti. Stefán kom vel út úr sínu fyrsta stórmóti sem kringlukastari og varð fjórði, 7 sentimetrum frá sínu besta.
Sindri Lárusson, okkar ungi og efnilegi kúluvarpari, varð annar í sinni grein á persónulegu meti og innan við metra á eftir Ólympíufaranum Óðni Birni Þorsteinssyni. Eins og áður í sumar sýndi Sindri mikið öryggi og er búinn að eiga frábært keppnistímabil.
Guðmundur Sverrisson hélt uppteknum hætti í spjótkastinu, sigraði og sendi spjótið enn einu sinni yfir 70 metra markið, vel studdur af öflugu klappliði. Guðmundur lauk þar með sínu langbesta keppnistímabili til þessa og fer jákvæður inn í undirbúning þess næsta sem verður spennandi að fylgjast með.
Einar Daði Lárusson fyrirliði karlaliðsins var sá einstaklingur í karlaliðinu sem keppti í flestum greinum. Í fjarveru Marks Johnson hóf hann fyrri daginn á að sigra örugglega í stangarstökkinu og verða annar í langstökki, aðeins 2sm á frá sigri. Einar hljóp svo endasprettinn í 4x100m boðhlaupinu og tryggði sveitinni sigur. Hann sigraði svo með yfirburðum á seinni degi í 110m grindahlaupi og eftir harða keppni í hástökki en klykkti svo út með taktískum endaspretti í 1000m boðhlaupinu og tryggði ÍR sigur, unglingamet og ÍR-met. Einar Daði sýndi mikið öryggi og keppnisskap í öllu sem hann gerði og leiddi karlaliðið til yfirburðasigurs í fyrsta skipti frá 1985.
Umsögn um keppendur ÍR í kvennakeppninni
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir hljóp 100m hlaupið þrátt fyrir veikindi og náði öðru sæti. Hrafnhild tryggði svo öruggan sigur ÍR kvenna í 4x100m boðhlaupinu með góðum endaspretti og hljóp fyrsta sprett í sigursveit ÍR í 1000m boðhlaupi sem náði næstbesta tíma sem íslensk boðhlaupssveit hefur náð í þessari grein. Andinn í liðinu speglast í viðhorfinu hjá báðum 100m hlaupurunum okkar. Það kom ekki annað til greina hjá Helga og Hrafnhild en að fórna sér fyrir liðið þrátt fyrir veikindi.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir keppti í flestum greinum ÍR kvenna. Hún byrjaði á að ná þriðja sæti í spjótkasti á fyrri degi, fjórða sæti í hástökki og vera í sigursveit ÍR í 4x100m boðhlaupi. Arna kom inn fyrir Kristínu Birnu í 100m grindahlaupið og var í forystu um mitt hlaup þegar hún rak sig í grind og datt en kláraði hlaupið. Arna Stefanía hljóp svo í skarðið fyrir Hrafnhild í 200m og náði þar öruggu 2. sæti og hljóp svo góðan þriðja sprett í 1000m boðhlaupssveitinni sem sigraði og náði næstbesta tíma sögunnar. Framlag Örnu var mjög mikilvægt, ekki síst þar sem hún þurfti að keppa með litlum fyrirvara í greinum þar sem liðsfélagar höfðu forfallast. Góður endir á löngu og erfiðu keppnistímabili.
Aníta Hinriksdóttir aðeins sextán ára hljóp í skarðið fyrir Kristínu Birnu í 400m grindahlaupi og náði þar þriðja sæti. Stuttu seinna hljóp hún gott 400m hlaup og varð önnur. Aníta vann svo 800m hlaupið með miklum yfirburðum. Aníta er hógvær og gríðarlega öflug keppnismanneskja sem rak endann á frábært keppnistímabil sitt með því að koma langfyrst í mark á endasprettinum í 1000m boðhlaupinu.
Fríða Rún Þórðardóttir, elsti liðsmaður ÍR, var að keppa í sinni 27. Bikarkeppni og sigraði af öryggi í bæði 1500m og 3000m hlaupunum. Fríða keppti fyrst í Bikarkeppni FRÍ árið 1983 og hefur aðeins sleppt þremur keppnum frá því ári. Það er ómetanlegt fyrir frjálsar og ÍR að eiga svo traustan liðsmann sem Fríða er.
Thelma Lind Kristjánsdóttir, 15 ára nýliði, leysti Björgu Gunnarsdóttur af í 4x100m boðhlaupinu en Björg gat ekki hlaupið vegna meiðsla. Thelma hljóp fyrsta sprettinn í sigursveit ÍR í boðhlaupinu. Góð byrjun hjá Thelmu.
Dóróthea Jóhannesdóttir hljóp annan sprett í báðum boðhlaupunum og til sigurs í báðum. Dóróthea er mjög öruggur og öflugur boðhlaupari. Hún tók að sér 200m sprettinn í stað 100m sprettsins í 1000m boðhlaupinu vegna veikinda hjá Hrafnhild og var tilbúin til að leysa af í fjölda annarra greina ef á hefði þurft að halda. Dóróthea, með sína fjölhæfni, er afar mikilvægur hlekkur í kvennaliðinu og hörku keppnismanneskja.
Bogey Ragnheiður Leósdóttir, 16 ára nýliði, náði þriðja sæti í stangarstökki í sinni fyrstu Bikarkeppni vel studd af Huldu Þorsteinsdóttur, sem því miður gat ekki stokkið vegna meiðsla. Góð innkoma hjá Bogey sem á framtíðina fyrir sér.
Sandra Pétursdóttir kom gagngert til keppni frá Danmörku þar sem hún stundar nám. Sandra sigraði af öryggi í sinni aðalgrein, sleggjukastinu, varð önnur í kringlukastinu og þriðja í kúluvarpi. Gull, silfur og brons er besti árangur Söndru á hennar ferli í Bikarkeppni FRÍ. Heimkoma Söndru, framlag í keppninni og liðsandinn sem alltaf fylgir henni var liðinu mikils virði.
Jóhanna Ingadóttir fyrirliði kvennaliðsins sigraði með yfirburðum og af miklu öryggi í þrístökkinu og háði mjög harða keppni í langstökkinu þar sem hún endaði í þriðja sæti. Árangur Jóhönnu í báðum greinum var hennar besti á árinu og hún sýndi á þessu móti öryggi og stöðugleika sem hafa verið hennar aðalsmerki á hennar langa ferli. Jóhanna er íþróttamaður sem er til fyrirmyndar hvar sem hún fer.
Þráinn Hafsteinsson
Yfirþjálfari Frjálsíþróttadeild ÍR