hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
14.8.2012

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri í frjálsíþróttum - 7 ÍR-ingar í liði Íslands

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri fer fram í Vaxjö í Svíþjóð 18. og 19. ágúst. Líð Íslands er skipað 16 ungmennum og þar af eru ÍR-ingar 7 talsins. Þetta eru þau

Dóróthea Jóhannesdóttir sem keppir í 100m hlaupi, þrístökki og 4x100m boðhlaupi
Arna Stefanía Guðmundsdóttir sem keppir í 100m og 400m hlaupi ásamt 4x100m og 4x400m boðhlaupum
Aníta Hinriksdóttir sem keppir í 800m hlaupi, 2000m hindrunarhlaupi og 4x100m boðhlaupi
Snorri Stefánsson sem keppir í 800m hlaupi og 4x400m boðhlaupi
Tómas Zoega sem keppir í 3000m hindrunarhlaupi
Sindri Lárusson sem keppir í kúluvarpi
Hilmar Örn Jónsson sem keppir í sleggjukasti

Meðal þjálfara í ferðinn verður yfirþjálfarinn okkar Þráinn Hafsteinsson.

Við óskum þeim öllum góðs gengis og munum að sjálfsögðu fylgjast með gangi mála hér á síðunni.