Lesa frétt
21.7.2012
Norðurlanda & Baltic meistaramót 20-22 ára í Noregi, Snorri með bætingu
Norðurlanda & Baltic meistaramót 20-22 ára fer fram í Jesshem í Noregi um helgina.
Ísland sendir þangað 6 keppendur og þar af eru fjórir ÍR-ingar, þeir eru Guðmundur Sverrisson sem keppir í spjótkasti, Snorri Sigurðsson í 800m hlaupi, Ívar Kristinn Jasonarson sem hleypur 100m, 200m og 400m og Einar Daði Lárusson sem keppir í stangarstökki og 100m.
Snorri Sigurðsson hljóp 800m á nýju persónulegu meti 1:52,99 mín og varð hann 7. í mark. Einar Daði hljóp á 11.11 sek í 100m og hafnaði í 11. sæti og Ívar á 11.15 sek og 13. sæti.Ívar Kristinn hljóp einnig 400m á 49,24 sek og varð 8. hann á best 49,16 sek þannig að hann var skammt frá sínu besta.
Sveinbjörg Zophoniasdóttir FH var rétt í þessu að landa gullverðlaunum í langstökki með heila 6.06 m í löglegum vindi. Óskum Sveinbjörgu innilega til hamingju !
Snorri hefur nýlega hlaupið ársbesta tíma Íslendings en það verður við ramman reip að draga um helgina en Snorri fær góða keppni og mun efalaust bæta árstímann á ný. Sama má segja um Ívar og Einar í 100m en ef aðstæður eru góðar þá stefna þeir báðir á góða bætingu. Ívar er með lakasta tímann í 200m og 400m en fær góða keppni og það er fyrir mestu. Einar fær góða keppni í stönginn og sama má segja um Guðmund í spjótkastinu en hann, eins og Snorri hefur náð góðum árangri að undanförnu. Óskum íslensku keppendunum góðs gengis en þjálfarar í ferðinni eru Alberto Borges og Einar Vilhjálmsson ÍR-þjálfarar
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.