hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
14.7.2012

MÍ fyrri dagur. Ein gullverðlaun í kvennaflokki, tvenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun.

Einu gullverðlaun í kvennaflokki á fyrri degi MÍ voru í 4x100 m boðhlaupi þar sem sveit ÍR sigraði örugglega á mjög góðum tíma, 47,92 sek. Sveitina skipuðu Björg Gunnarsdóttir, Dóróthea Jóhannesdóttir, Arna Stefanía Guðmundsdóttir og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir. Hrafnhild vann til silfurverðlauna í 100 m hlaupi þegar hún jafnaði sinn besta árangur, 12,07 sek. Fríða Rún Þórðardóttir vann silfurverðlaun í 1500 m á 4:57,41 mín.  Arna Stefanía vann bronsverðlaun í 100 m grindahlaupi og bætti sinn árangur þegar hún hljóp á 14,91 sek. Jóhanna Ingadóttir vann bronsverðlaun í langstökki, stökk 5,62 m og Edda Eir Guðlaugsdóttir vann til bronsverðlauna í stangarstökki með 2,52 m. Kvennaliðið er öðru sæti í stigakeppninni en ÍR-ingar leiða heildarstigakepnnina.