hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
10.7.2012

Aníta Hinriksdóttir bætti á ný Íslandsmetið í 800m hlaupi kvenna, er komin í úrslit á HM

Aníta Hinriksdóttir ÍR bætti rétt í þessu Íslandsmetið í 800m hlaupi kvenna í undanrásum Heimsmeistaramóts unglinga í Barcelona þegar hún hljóp á 2:04.74 mín og varð hún í 2. sæti í sínum riðli. Aníta er með 6. besta tímann inn í úrslit en Jessica Judd frá Bretlandi hljóp hraðast allar á 2:02,71 mín. Undanúrslitin fara fram á hádegi á morgun, miðvikudag og úrslitin að kvöldi 12. júlí. 24 stúlkur fara áfram  í undanúrslit. Óskum Anítu góðs gengis á morgun.