hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
8.7.2012

Tvö gull og eitt silfur í Gautaborg

Góð byrjun hjá okkar krökkum í Gautaborg. Þrjú á verðlaunapall og margar persónulegar bætingar.

Aníta Hinriksdóttir hljóp 400m á 55,21sek. vann til gullverðlauna og setti mótsmet og aldursflokkamett í 16-17 ára. Hilmar Örn Jónsson vann til gullverðlauna í sleggjukasti (5kg) með 65,68m kasti. Hann vann einnig til gullverðlauna í kúluvarpi (5kg). Kastaði lengst 17,52m sem er mótsmet og aldursflokkamet í 16-17 ára. Vilborg María Loftsdóttir varð í öðru sæti í þrístökki, stökk lengst 10,82m.

Mikið var um persónulegar bætingar. Kristinn Héðinsson hljóp 100m á 12,10sek og 400m á 54,64sek. Ari Hörður Friðbjarnarson hljóp 100m á 13,47sek. Sigríður Karlsdóttir hljóp 100m á 13,31sek og 400m á 65,56sek. Kristín Margrét Kristjánsdóttir hljóp 100m á 14,13sek og 400m á 67,37sek. Laufey Svafa Rúnarsdóttir hljóp 100m á 13,89sek og 400m á 61,58sek. Ragnhildur Oddný Loftsdóttir hljóp 100m á 14,91sek. Auður María Óskarsdóttir hljóp 100m á 14,35sek og stökk 2,71m í stangarstökki. Tómas Kolbeinn Georgsson hljóp 100m á 12,93sek. Sævar Hlíðkvist Kristmarsson hljóp 100m 11.97sek og stökk 1,55m í hástökki. Antony Þórir Santos hljóp 100m á 12,48sek. Halldór Bjarni Stefánsson stökk 1,51m í hástökki. Guðmundur Hjalti Jónsson hljóp 100m á 12,24sek. Ragnheiður Haraldsdóttir hljóp 100m á 14,05sek. Melkorka Embla Hjartardóttir hljóp 100m 14,25sek. Sandra Eiríksdóttir stökk 9,80m í þrístökki. Kolbrún Eva Gránz hljóp 100m á 14,66sek. Atli Björn Karlsson hljóp 100m á 16,80sek. Ingibjörg Dana Vignisdóttir hljóp 80m á 11,93sek. Margrét Hlín Harðardóttir hljóp 80m á 11,49sek og stökk 9,54m í þrístökki. Sara Ívarsdóttir stökk 8,37m í þrístökki. Hildigunnur Þórarinsdóttir stökk 9,61m í þrístökki. Agnes Kristjánsdóttir stökk 9,38m í þrístökki. Birta Konráðsdóttir stökk 8,58m í þrístökki. Elísabet Sunna Gunnarsdóttir stökk 7,80m í þrístökki. Harpa Sigríður Óskarsdóttir stökk 7,70m í þrístökki. Markús Ingi Hauksson stökk 8,71m í þrístökki. Þorsteinn Ívar Albertsson stökk 9,47m í þrístökki. Árni Haukur Árnason hljóp 80m á 11,75sek. 

Margir voru að hlaupa 80m í fyrsta sinn og aðrir voru ekki langt frá sínum besta árangri í sínum greinum. Bestu aðstæður voru til keppni hér í Gautaborg. Yfir 20 stiga hiti og sólarlaust.

Við óskum krökkunum innilega til hamingju með árangurinn.