hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
1.7.2012

Ágætur árangur ÍR-inga á seinni degi MÍ 11 til 14 ára

ÍR hlaut flest stig allra liða á síðari degi MÍ 11 - 14 ára en hafnaði engu að síður í öðru sæti í heildarstigakeppninni. Öruggur sigur vannst í flokki 13 ára stúlkna. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir bætti tveimur gullverðlaunum í safnið. Hún sigraði í langstökki með 4,20 m og hljóp síðasta sprettinn í sigursveit ÍR í 4x100 m boðhlaupi. ÍR-ingar voru með mjög öflugar boðhlaupssveitir. Sigur vannst einnig í flokki 11 ára pilta, 12 ára stúlkna, 13 ára pilta og 13 ára stúlkna en þar vann B-sveitin til bronsverðlauna. Stúlknasveitin í 14 ára flokki vann einnig til bronsverðlauna sem og piltasveitin í 12 ára flokki. Í flokki 11 ára pilta vann Bjarki Sigurjónsson bronsverðlaun í spjótkasti með 26,77 m og Sigurður Einarsson vann bronsverðlaun í langstökki með 4,17 m í sama flokki. Í flokki 12 ára stúlkna varð Ráðhildur Ólafsdóttir í þriðja sæti íí kúluvarpi  með 8,35 m. Vilborg María Loftsdóttir vann til gullverðlauna í langstökki 13 ára stúlkna með 4,84 m. Það var stór hópur ÍR-inga sem keppti um helgina og ástæða til óska honum og þjálfurum til hamingju með góðan árangur.MÍ 11 - 14 ára 4x100 13 ára