hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
28.6.2012

Einar Daði á EM - Næst besta þraut Einars Daða 7653 stig

ugþrautarkeppni Evrópumótsins er lokið og Einar Daði hafnaði í 13. sæti með 7653 stig. Þetta er fyrsta stórmótið sem Einar Daði keppir á í karlaflokki og frábært að fá það í reynslubankann.

Einar Daði hljóp 1500 m á 4:39,38 mín sem gefur 684 stig. Spjótið sveif  51,75 m og hlaut Einar Daði 615 stilg fyirr.

Í stangarstökki  stökk hann yfir 4,6 m sem er nokkuð frá hans besta. Þetta gefur 790 stig

Í kringlukasti voru tvö síðustu köst Einars Daða dæmd ógild. Úrskurður dómara var kærður en ógildingin var úrskurðuð rétt. Gilda kastið var 35,95 m sem gefur 583 stig.

Hann hljóp 110m grindahlaupið á 14,72 sek sem er hans annar besti tími og gefur honum 884 stig.