Lesa frétt
27.6.2012
Einar Daði á EM - 4097 stig að loknum fyrri degi og 9.sæti

Fyrra degi er nú lokið í tugþrautarkeppni Evrópumótsins í Helsingi. Síðasta grein dagsins var 400 m hlaup þar sem Einar Daði gerði sér lítið fyrir og bætti sinn besta árangur þegar hann hljóp á 49,07 sekúndum. Árangur sem gefur 858 stig.
Einar Daði fór yfir 2m í hástökkinu sem gefur honum 803 stig. Þessi árangur er á milli þess sem hann stökk á Ítalíu þar sem hann fór yfir 1,98m og 2,04m sem hann stökk yfir í Tékklandi.
Í kúluvarpinu kastaði Einar 13.65m sem gefur 707 stig og er þetta er nokkuð frá hans besta í Kaldnó þegar hann kastaði 13.99 m. En lengra en á Ítalíu. Einar var 14. í kúluvarpinu.
Í langstökkinu þurfti Einar Daði greinilega að eins að ná sér niður eftir frábæra byrjun í 100 m hlaupinu. Fyrsta stökkið var 6,96m, annað stökkið reyndist lengsts og var 7,33m en í þriðja stökkinu hitti hann illa á plankann. Einar Daði varð annar í sinum stökkhópi á eftir Roman Sebrie sem stökk 7,43m. Langstökkið gefur Einari Daða 893stig.
Einar Daði hljóp 100m á tímanum 11.11 sek. Stórbæting frá hinum tveimur þrautunum þar sem hann hljóp á 11.23 s og 11.24 sek. 11.11 sek gefur honum 836 stig. Í hlaupinu bættu 6 sinn besta árangur í 100m og 7 til viðbótar bættu sinn ársbesta árangur.
Að loknum fyrri keppnisdegi er Einar Daði með 4097 stig og í 9. sæti. Oleksiy Kasyanov leiðir keppnina með 4352 stig.
Keppni hefst í fyrramálið kl. 6 að íslenskum tíma. Við óskum Einari Daða allt hins besta á morgun.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.