hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
27.6.2012

YOUNG LEADERS FORUM í tengslum við EM í Helsingi

Í tengslum við Evrópumeistaramótið í Helsinki stendur Frjálsíþróttasamband Evrópu (EAA) og UNESCO fyrir ráðstefnu fyrir ungt fólk sem ber yfirskriftina YOUNG LEADERS FORUM. Eins og nafnið bendir til þurfa þátttakendur að vera virkir í frjálsíþróttastarfinu í sínu landi s.s. í yngri flokka þjálfun eða öðrum leiðtogastörfum. Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 18-26 ára og auk þess þurfa þeir að hafa unnið að áhugaverðu verkefni sem ber að kynna á ráðstefnunni.

ÍR-ingar eiga fulltrúa Íslands á ráðstefnunni. Það eru þeir Helgi Björnsson og Brynjar Gunnarsson . Þeir hafa báðir stundað frjálsíþróttir frá barnæsku hjá ÍR og starfa núna sem þjálfarar yngriflokka hjá ÍR. Þeir stunda nám í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík en þar eru þeir að vinna að þróunarverkefni um kennslu barna í frjálsum íþróttum undir stjórn Þórdísar Gísladóttir lektors í HR. Verkefnið er styrkt af nýsköpunarsjóði námsmanna og munu þeir vinna við verkefnið í allt sumar. Helgi og Brynjar munu kynna verkefnið á ráðstefnunni sem fjallar um frjálsíþróttakennslu í skólum og keppnisfyrirkomulag á frjálsíþróttamótum barna. Við óskum þeim góðs gengis og vonum að verkefni þeirra veki athygli á ráðstefnunni.