hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
27.6.2012

Einar Daði Lárusson á EM - 3239 stig að loknum fjórum greinum

einar_langstokk_ostrava2011Einar Daði hefur lokið keppni í hástökki í tugþrautarkeppninni á Evrópumeistaramótinu í Helsingi.

Einar Daði fór yfir 2m í hástökkinu sem gefur honum 803 stig. Þessi árangur er á milli þess sem hann stökk á Ítalíu þar sem hann fór yfir 1,98m og 2,04m sem hann stökk yfir í Tékklandi.

Í kúluvarpinu kastaði Einar 13.65m sem gefur 707 stig og er þetta  er nokkuð frá hans besta í Kaldnó þegar hann kastaði 13.99 m. En lengra en á Ítalíu. Einar var 14. í kúluvarpinu.

Í langstökkinu þurfti  Einar Daði  greinilega að eins að ná sér niður eftir frábæra byrjun í 100 m hlaupinu. Fyrsta stökkið var 6,96m, annað stökkið reyndist lengsts og var 7,33m en í þriðja stökkinu hitti hann illa á plankann. Einar Daði varð annar í sinum stökkhópi á eftir Roman Sebrie sem stökk 7,43m. Langstökkið gefur Einari Daða 893stig. 

Einar Daði  hljóp 100m á tímanum 11.11 sek. Stórbæting frá hinum tveimur þrautunum þar sem hann hljóp á 11.23 s og 11.24 sek. 11.11 sek gefur honum 836 stig. Í hlaupinu bættu 6 sinn besta árangur í 100m og 7 til viðbótar bættu sinn ársbesta árangur.

Að fjórum greinum loknum er Einar Daði  með 3239 stig en þar sem hástökkskeppninni er ekki lokið er ekki komið í ljós í hvaða sæti hann er

Dginum lýkur hjá tugþrautarköppunum á 400 m hlaupi sem hefst kl. 16:08. Einar Daði hleypur í þriðja riðli sem áætlað er að starti kl. 16:22.