hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
26.6.2012

Einar Daði Lárusson keppir í fyrsta sinn á stórmóti í karlaflokki

Einar Daði Lárusson ÍR keppir í fyrsta sinn á stórmóti (til stórmóts telst EM, HM og Ólympíuleikar) í tugþraut í karlaflokki þegar hann hefur keppni á EM í Helsinki á morgun. Einar Daði hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli það sem af er sumri fyrir glæsilegan árangur í stigamótum IAAF á Ítalíu og í Tékklandi. Á stigamóti IAAF á Ítalíu í byrjun maí bætti hann unglingamet sitt í tugþraut þegar hann náði 3. sæti með 7590 stig. Mánuði síðar kom svo stóra bætingin á stigamóti IAAF sem fram fór í Kladno í Tékklandi. Þar hóf hann keppni með 19. besta árangur keppenda en náði 5. sæti í mótinu og stórbætti unglingamet sitt og náði auk þess lágmarki til keppni á EM með 7898 stig. Sá árangur var aðeins 52 stigum frá Ólympíulágmarkinu.

Á EM getur Einar Daði kappi við 25 aðra sterka tugþrautarmenn – þá bestu í Evrópu. Þeirra á meðal eru 16 þátttakendur sem náð hafa 8000 stiga markinu en Einar Daði á 19. besta árangur keppenda. Meðal keppenda er fyrrverandi heimsmethafi Roman Zberle, sem missti heimsmet sitt um sl. helgi, og Adam Helcelet báðir frá Tékklandi en þeir höfðu báðir betur gegn Einari Daða í þrautinni í Tékklandi. Frá Bretlandi kemur Ashley Bryant sem náði öðru sæti í þrautinni gegn Einari Daða á Ítalíu í vor. Frá Þýskalandi koma þrír 8000 stiga keppendur og frá Svíþjóð koma einnig þrír keppendur en Einar Daði á betri árangur en allir Svíarnir. Eini keppandi Finnalnds í þrautinni hefur ekki nað eins góðum árangri og Einar Daði.

Árangur Einars Daða í þrautunum í á Ítalíu og Tékklandi var þessi:

Grein             Ítalía           Tékkland

100m               11,24           11,23
Langstökk         7,16            7,35
Kúluvarp           13,50           13,99
Hástökk            1,98            2,04
400m                 49.55          49,16
Stig fyrri dag  3978           4130
110m grind         14,83         14,49
Kringlukast           38,09        38,74
Stangarstökk       4,65           4,77
Spjótkast             51,29        56,08
1500m               4:36,34       4:37,17
Samtals stig        7590         7898
Einari Daða til aðstoðar í Helsinki eru Þráinn Hafsteinsson aðalþjálfari hans, Kristján Gissurarson stangarstökksþjálfari og Jón Birgir Guðmundsson sjúkraþjálfari.