hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
20.6.2012

Stórhátíð Gogga galvasa um helgina

Goggi Galvaski 2011 003Stærsta mót sumarsins hjá ungu frjálsíþróttafólki er um helgina. ÍR-ingar fara með fjölmennt lið á Gogga eins og unganfarin ár og nú mun hluti af liðinu gista í Mosfellsbænum og taka þátt í allri dagskrá mótsins sem er skemmtileg og full af spennandi uppákomum. Stórhátíð Gogga galvaska er fyrir 14 ára og yngir og það eru 11 og 12 ára krakkarnir sem ætla að í útilegu í Mos ásamt þjálfurum sínum þeim Örvari, Helga og Söru. Við hvetjum foreldra til að heimsækja Mosfellsbæ að anda að sér stemningunni og hvetja sitt lið. Eins og sjá má á myndinni sem tekin var á Gogga í fyrr er stemningin í fínu lagi.