hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
20.6.2012

Hilmar Örn og Sindri með aldursflokkamet

sleggja bikar 7HilmarHimar Örn Jónsson keppti í sleggjukasti í gær á innanfélagsmóti FH. Hann kastaði 6 kg sleggju í fyrsta sinn á þessu ári og fór hún lengst 61,44m. Þetta er met í flokki 16-17 ára pilta, fyrra metið átti hann sjálfur og var það 55.73m.

Sindri Lárusson keppti í gær á innanfélagsmóti ÍR með 6 kg kúlu. Hann varpaði kúlunni lengst 17,41m sem er bæting um 22cm frá því á Vormóti ÍR. Þetta er met í flokki 18-19 ára. Stefán Árni Hafsteinsson sem er ný byrjaður að æfa köst með meistaraflokki deildarinnar keppti einnig í gær á sama móti. Hann keppti í karla kringlu og kastaði hann 38,32m. Glæsileg byrjun hjá honum.

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.