hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
10.6.2012

Íslandsmet unglinga í tugþraut hjá Einari Daða

Einar Daði -andTugþrautarkeppninni er nú lokið í Kladno. Síðasta grein dagsins var 1500 m hlaup sem Einar Daði hljóp á 4:37,12 mín.og hlaut 7898 stig samtals sem er nýtt Íslandsmet unglinga í tugþraut. Einar Daði var að eins 52 stigum frá því að ná lágmarki á Ólympíuleikana en náði með þessari frábæru þraut lágmarki á Evrópumeistaramótið sem fram fer í Finnlandi í lok júni. Einar Daði varð í 5. sæti í þrautinni á þessu gríðarlega sterka móti. Frábær árangur og fróðlegt að fylgjast með framhaldinu í sumar. Til hamingju.