hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
9.6.2012

Fyrri degi hjá Einari Daða er nú lokið.

Einar Daði hefur nú lokið fyrri degi á Fortuna Meeting í Kladnó í Tékklandi. Einar stökk hærra en nokkru sinni áður í hástökkinu eða 2.04 m og er nokkuð mörg ár síðan íslendingur stökk þá hæð. Þetta er mun betri árangur en í metþrautinni en þá fór Einar 1,98 m. Í lokagrein fyrri dags sem er 400m hlaup þá hljóp Einar Daði á 49,16 sek sem er, eins og allar aðrar greinar dagsins betra en í metþrautinni.

Niðurstaða dagsins er glæsilegt 3. sæti, 4130 stig, 152 stigum meira en í metþrautinni.

Í fyrramálið hefst keppni með 110m grindahlaupi, þá tekur við kringlukast, næst er það stangarstökkið, þá spjótkast og keppninni líkur síðan með 1500m hlaupi þar sem síðustu orkudroparnir eru nýttir til hins ýtrasta.

Óskum Einari, Þráni, Kristjáni og Stefáni til hamingju með góðan dag.