Lesa frétt
8.6.2012
Einar Daði mætir heimsmethafanum í tugþraut í Kladno í Tékklandi um helgina
Einar Daði Lárusson tugþrautarmaður úr ÍR keppir um helgina á stigamóti IAAF sem fram fer í Kladno í Tékklandi. Fyrir mánuði síðan náði Einar Daði þeim frábæra arángri að ná þriðja sæti á öðru slíku stigamóti sem fram fór á Ítalíu. Mótið í Tékklandi er þó mun sterkara með 26 keppendur og á Einar 19. besta árangur þeirra 7590 stig frá þrautinni á Ítalíu. Keppnin fer fram á heimavelli heimsmethafans sjálfs Romans Sebrle, en heimsmet hans er 9026 stig. Sigurvegarinn frá mótinu á Ítalíu Dimitry Karpov sem á best 8725 stig verður einnig meðal keppenda ásamt sex öðrum tugþrautarmönnum sem eiga yfir 8000 stig. Það verður því augljóslega við ramman reip að draga fyrir Einar Daða sem náði 13. sæti í fyrra á þessu sama móti en þá keppti hann í sinni fyrstu tugþraut í karlaflokki. Markmið Einars er að bæta sinn besta árangur í þrautinni og ná tíunda sæti í keppninni.
Árangur Einars Daða frá mótinu á Ítalíu 5.-6. Maí þegar hann setti Íslandsmet unglinga var sem hér segir:
100m hlaup 11.24 808 stig
Langstökk 7,16 852 stig
Kúluvarp 13.50 698 stig
Hástökk 1,98m 785 stig
400m 49,55 835 stig 3978 eftir fyrr dag
110m grind 14,83 870 stig
Kringlukast 38,09 626 stig
Stangarstökk 4,65 804 stig
Spjótkast 51,29 608 stig
1500m 4:36,34 704 stig 7590 stig Íslenskt unglingamet 22 ára og yngri
Allar upplýsingar um mótið má finna á http://www.desetiboj-kladno.cz/eng/
Með Einari Daða í för á mótinu er Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari hans og fyrrverandi Íslandsmethafi í tuþraut, Kristján Gissurarson stangarstökksþjálfari Einars Daða og Stefán Már Ágústsson nuddari og aðstoðarmaður
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.