hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
22.5.2012

Ágætur árangur á innanfélagsmóti ÍR

Óskar Markús Óskarsson úr Aftureldingu bætti aldursflokkametið í stangarstökki 16-17ára pilta á innanfélagsmóti ÍR í Laugardalshöll í kvöld.  Óskar Bjarni hefur undanfarna mánuði notið leiðsagnar Kristjáns Gissuarsonar sem einnig hefur unnið vel með Einari Daða Lárussyni sem stökk 4,61m og Mark Johnson sem í kvöld náði sínum besta árangri í vetur með því að sigra stangarstökkskeppnina með 5,01m.  Jóhanna Ingadóttir ÍR stökk 11,75m á sínu fyrsta móti á þessu vori, sem er hennar besta byrjun frá því árið 2009.  Sigurlaug Helgadóttir ÍR var nálægt sínu besta þegar hún varð önnur í þrístökkinu með 10,93m stökki.  Arna Stefanía Guðmundsdóttir ÍR sem keppir í sjöþraut á Tenerife um næstu helgi setti persónulegt met í kúluvarpi innanhúss með 4kg kúlu varpaði 9,75m.  Einar Daði Lárusson ÍR endaði svo kvöldið með sigir í 200m hlaupi og setti persónulegt met 22,35 sek en Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki varð annar á 22,90 sek.   Einar Daði býr sig nú af kappi undir keppni í tugþraut í Kladno í Tékklandi 9.-10. Júní.