valitor











































Lesa frétt
2.9.2010

Norðurlanda-Baltic mót 20-22 ára, Sönderhamn Svíþjóð

Um helgina fer fram Norðurlanda-Balticmeistaramót 20-22 ára en mótið fer fram á tveggja ára fresti. Á mótinu keppa allar Norðurlandaþjóðirnar ásamt keppendum frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
 
Í ár náðu alls tíu einstaklingar, þar af fimm ÍR-ingar, settu lágmarki FRÍ en fimm hafa ákveðið að keppa nú um helgina. Þetta er hærri tala en verið hefur undanfarin ár og gefur góð fyrirheit um framtíðar afreksmenn. Pétur Guðmundsson kastþjálfari er þjálfari hópsins.

Aðeins Guðmundur Sverrisson keppir úr röðum ÍR-inga og kastar hann spjótinu nk. sunnudag. Hann á best 66.23 m síðan 2009 en hefur kastað lengst 63,56m í ár sem setur hann í 3. sæti á árslista fullorðinna og 2. sæti á árslista unglinga. 12 keppendur eru skráðir til leiks í spjótkastinu og hafa þeir kastað allt að 78 metrum. Gríðarlega hár standard á þeirri keppnisgrein mótsins.

Aðrir keppendur eru:
Þorsteinn Ingvarsson HSÞ sem keppir í langstökki, PB 7,79m, en Þorsteinn hefur æft undir stjórn Þráins Hafsteinssonar síðan sl. haust. Þorsteinn verður í harðri keppni við þrjá aðra langstökkvara sem allir eru að stökkva á bilinu 7.73-7.76m.

Bjartmar Örnuson UFA sem keppir í 800m hlaupi, PB 1:52,91 mín, en hann hefur bætt sig töluvert núna undanfarið og verður spennandi að fylgjast með honum á þessu móti. Bjartmar fær verðuga keppni á mótinu en hraðasti tíminn er 1:49.94 mín en margir eru að hlaupa á 1:50 til 1:51 mín

Örn Davíðsson FH sem keppir í spjótkasti, PB 68.55m, og hefur sínt góðan árangur og framfarir sérstaklega síðsumars.

Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi sem keppir í 400m grindahlaupi, PB 62.24 sek og hástökki, PB 1.66m, en Fjóla hefur sýnt góða takta í 400m grindinni í sumar með þriðja besta árs árangurinn og fær hún verðuga keppni á mótinu.

Heimasíða mótsins er http://www.idrottsguiden.se/nordic2010/ en fylgst verður með gangi mála hér á síðunni.