valitor











































Lesa frétt
2.9.2010

Sænska Meistaramótið í fjölþrautum, Kristín Birna og Arna Stefanía meðal keppenda

Um næstu helgi verður sænska meistaramótið í fjölþrautum haldið í Huddinge sem er rétt fyrir utan Stokkhólm. Yfir 60 keppendur taka þátt í mótinu og eru fjórir Íslendingar þar á meðal.

Kristín Birna Ólafsdóttir (1985) og Arna Stefanía Guðmundsdóttir (1995) keppa á mótinu auk Sveinbjargar Zophoníasdóttur (1992) frá USÚ og Inga Rúnars Kristinssonar (1993) Breiðablik. Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari frjálsíþróttadeildarinnar og Guðmundur Þ. Guðmundsson faðir Örnu fara með íþróttafólkinu og verða þeim til aðstoðar.

Kristín Birna og Arna Stefanía keppa í sjöþraut kvenna, Sveinbjörg í sjöþraut stúlkna 19 ára ogo Ingi Rúnar keppir í tugþraut 17-18 ára.
Kristín Birna á best 5,402 stig frá árinu 2006 og 5.342 stig síðan 2008 en Arna Stefanía á best 4,936 stig með meyja áhöldum síðan á Norðurlandameistaramótinu í vor.

Fylgst verður með árangrinum hér á síðunni en einnig verður hægt að fylgast með gangi mála í gegnum heimasíðu mótsins.
Óskum þeim öllum góðrar ferðar og góðs árangurs.
 

http://www.proteamonline.se/customers/content.asp?Id=465&ContentId=45992