valitor











































Lesa frétt
29.8.2010

Norðurlandameistarmót 19 ára og yngri, síðustu greinarnar

Keppni er nú lokið á NM unglinga. Besta sæti dagsins kom í langstökki kvenna þar sem Sveinbjörg Zophoniasdóttir varð 2. með 5,76 m. Sveinbjörg var um 20 cm á eftir 1. sætinu og gerði hún öll stökk sín gild.

Salbjörg Ragna Sævarsdóttir varð 7. í kúluvarpi með 10,63 m sem er rétt við hennar besta. Í 2000m hindrunarhlaupi var Helga Guðný Elíasdóttir að keppa í fyrsta sinn og varð hún 5. á 8:00.03 mín. Í 3000m hindrunarhlaupi karla hljóp Tómas Zoega mjög vel í sínu öðru hlaupi um ævina hljóp á 10:13,22 mín sem er veruleg bæting en hann átti best 10:29,71 mín síðan fyrir 1 viku síðan, hann varð 6. í hlaupinu. Í spjótkasti varð Sindri Hrafn Guðmundsson í 6. sæti með 53,66m sem er við hans besta.

Deginum og keppninni lauk með 4 x 400m boðhlaupum og urðu stúlkurnar í 4. sæti á 3:48,23 mín og drengirnir 5. á 3:31,04 mín.

Í stigakeppni karla varð Ísland í 5. og síðasta sæti með 19 stig en konurnar hlutu 45 stig og unnu Dani með 10 stiga mun. Í heildina varð íslenska liðið í 6. sæti með 64 stig. Norðmenn unnu með 165 stig, Svíþjóð varð í 2. sæti með 162 stig, Finnar einu stigi minna í 3. sæti og Danir í 4. sæti með 79 stig.