valitor











































Lesa frétt
29.8.2010

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri, María Ósk Felixdóttir með bætingu í sleggjukasti

María Ósk Felixdóttir kastaði sleggjunni 48.96 m á og bætti sig um 6 cm. Hún varð í 5. sæti og er þetta góður árangur hjá henni. María hefur sýnt stigvaxandi framfarir í sumar og er þetta góður endir á fínu keppnistímabili hjá henni.

Aðrir sem keppt hafa í dag eru María Rún Gunnlaugsdóttir sem hljóp mjög fínt 100m grindahlaup, hljóp á 14,91 sek í löglegum vindi og bætti sig um rúmlega 30/100 sek, flott hjá Maríu Rún! 

Fleiri hafa ekki lokið keppni í morgun nema að haldið var aukahlaup (sem ekki reiknast til stiga) og hljóp Ívar Jasonarson þar á 11,51 sek og Juan Ramón Borges á 11,67 sek í löglegum vindi, Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir hljóp 100m á 13,31 sek í stífum mótvindi.