valitor











































Lesa frétt
28.8.2010

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri, Arna Stefanía Guðmundsdóttir Norðurlandameistari

Arna Stefanía Guðmundsdóttir varð rétt í þessu 3. íslenski Norðurlandameistari dagsins þegar hún sigraði glæsilega í 400m hlaupi á tímanum 56,46 sek og bætti sig um 20/100 sek. Sú í öðru sæti hljóp á 57,20 sek en húná best 56,61 sek. Frábær árangur hjá Örnu Stefaníu sem fór inn í keppnina með þriðja lakasta tímann. Til hamingju !

Björg Gunnarsdóttir hljóp gott 800m hlaup og varð 4. hljóp á 2:23,47 mín og var aðeins 4 sekúndum á eftir sigurvegaranum Zenithe Eriksson frá Finnlandi sem hljóp á 2:19,17 mín en hún á best 2:07,62 mín sem sýnir hversu langt frá sínu besta keppendur eru í dag.

Ingunn Ýr Angantísdóttir varð 7. í þrístökki mð 10,12 m.