valitor











































Lesa frétt
28.8.2010

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri í frjálsum, Stefanía Valdimarsdóttir Norðurlandameistari

NM í frjálsum er hafið á Akureyri en þar eru aðstæður til keppni ekki góðar, rok og kuldi.
Fyrstu úrslit dagsins eru þau að Stefanía Valdimarsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í 400m grindahlaupi á 62,65 sek en hún átti fyrir annan besta tímann. Til hamingju Stefanía. Í hástökki karla varð Hreinn Heiðar Jóhannesson í 5. sæti með 1,93 m sem er 1 cm lakara en hans besti árangur sem er mjög gott á stóru móti sem þessu. Keppni er einnig lokið í 400m grindahlaupi karla en þar varð Örn Dúi Svanhildarson í 7. sæti
Stangarstökk kvenna stendur nú yfir og er Hulda Þorsteinsdóttir með bestan árangur keppenda 3,95 m eða 10 cm hærra en næsti keppandi.