25.8.2010
Norðurlandameistaramót Unglinga í Frjálsíþróttum 19 ára og yngri
Nú styttist óðfluga í Norðurlandameistaramótið sem haldið verður á Akureyri helgina 28.-29. ágúst. 14 ÍR-ingar hafa verið valdir til keppni en alls eru keppendur frá Íslandi um 32 talsins. Gunnar Páll Jóakimsson millivegalengda- og langhlaupsþjálfari úr þjálfarateymi Frjálsíþróttadeildarinnar er meðal þeirra fimm þjálfara sem stýra liðinu um helgina.
Fæstir af íslensku keppendunum eiga möguleika á verðlaunasæti og spilar þar aðallega inn í aldur íslensku keppendanna en það er eftirtektarvert hversu ungt íslenska liðið er samanborið við hin liðin. Þátttaka í mótinu og sú upphefð og reynsla sem það gefur er góð æfing og veganesti inni framtíðina fyrir okkar unga afreksfólk sem líkur frábæru utanhúss keppnistímabili sínu á þessu móti.
Keppendalistar hafa verið birtir á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands undir
www.fri.is / mót / mótaforrit en þar má fylgjast með mótinu en einnig verður fylgst með gengi ÍR-inganna hér á síðunni.
ÍR-ingar í unglingalandsliði Íslands
Adam Þór Þorgeirsson, boðhlaup
Aníta Hinriksdóttir, 1500m og 3000m hlaup
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 400m, 200m, boðhlaup
Björg Gunnarsdóttir, 800m, boðhlaup
Dóróthea Jóhannesdóttir, 100m, boðhlaup
Hekla Rún Ámundadóttir, spjótkast
Hjalti Geir Garðarsson, kringlukast
Hulda Þorsteinsdóttir, stangarstökk
Ívar Jasonarson, þrístökk, boðhlaup
Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir, boðhlaup
Juan Ramón Borges Bosque, langstökk
María Felixdóttir, sleggjukast
Snorri Stefánsson, 800m
Stefán Árni Hafsteinsson, stangarstökk
gangi ykkur vel og góða skemmtun