Lesa frétt
24.8.2010
Sigurhátíð Frjálsíþróttadeildar ÍR

Iðkendur Frjálsíþróttadeildar ÍR hafa náð þeim stórkostlega árangri í ár að vera Íslandsmeistarar félagsliða árið 2010 í öllum aldursflokkum utanhúss og inn ásamt því að vera bikarmeistarar í frjálsíþróttum utanhúss og inna og bikarmeistarar 16 ára og yngri. Frjálsíþróttafólkið í ÍR hefur með öðrum orðum unnið alla stóru titlana sem í boði eru hérlendis í sinni íþróttagrein. Þetta hefur ekkert félag gert áður.
Árangur sem þessi verður ekki til á einni nóttu. Hann er afrakstur mikillar vinnu fjölmargra einstaklinga með þjálfarana í broddi fylkingar. Þessi uppbygging hófst fyrir 10 árum og síðan þá hefur markvisst verið unnið að því að hlúa vel að iðkendum. Allir hafa tekið virkan þátt og lagt sig fram um að starfið í deildinni væri jákvætt og gefandi fyrir alla sem taka þátt. Frjálsíþróttadeild ÍR er stórt og mikið „þorp" sem heldur vel utan um börnin sín. Það skilar árangri ekki bara á íþróttasviðinu
Í tilefni af þessu einstaka árangri mun deildin halda sigurhátíð í ÍR-heimilinu fimmtudaginn 26. ágúst kl. 20.00. Öllum iðkendum og þjálfurum ásamt fjölskyldum þeirra er boðið til hátíðarinnar, ásamt öllum þeim fjölmörgu sem leggja deildinni lið með einum eða öðrum hætti. Hittumst öll í sigurskapi og rifjum upp góðar minningar, skoðum myndir og gleðjumst saman.
Stjórn Frjálsíþróttadeildar ÍR
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.