valitor











































Lesa frétt
22.8.2010

Heimsmet Wilsons Kipketers slegið

David Rudisha frá Keníu bætti í dag heimsmet hins kenískættaða Dana um 2 hundruðustu úr sekúntu þegar hann hljóp 800 metrana á 1.41,09 mínútum á ISTAF mótinu í Berlín.
Rudisha sem er aðeins 21 árs gamall ætlaði sér að bæta heimsmetið og bæta þannig upp fyrir vonbrigði síðasta árs þegar hann féll úr leik í undanúrslitum á HM sem haldið var á sama leikvangi. Rudisha hafði fyrr í sumar hoggið nærri metinu þegar hann hljóp á 1.41,51 á móti í Hollandi en hlaupið í dag var fyrsta skiptið sem hans eina markmið var að slá heimsmetið. "Ég vissi að þetta var minn dagur," sagði hinn nýbakaði heimsmethafi, "ég er búinn að æfa vel og veðrið var gott. Ég sagði héranum að hlaupa fyrri hringinn undir 49 sekúntum, hann stóð sig mjög vel."
Myndband af hlaupinu má sjá hér: http://www.youtube.com/watch?v=xJuwzXDnzuw&feature=search